Eins og Orkuvaktin benti á í júlí var öllum samningum um
ótryggða raforku sagt upp frá og með áramótum af hálfu orkusala
vegna fyrirhugaðra breytinga á skilmálum Landsvirkjunar. Þá
strax komu fram vísbendingar um að talsverðar hækkanir væru í
pípunum. Nú er orðið ljóst að hækkunin verður gríðarleg,
líklega á bilinu 80 - 100% hjá flestum notendum. Skilmálar
breytast einnig og verður notendum gert að skila inn áætlunum á
einhverju formi sem standa verður við. Skeiki áætlun um meira
en sem nemur tilteknum vikmörkum, er notanda gert að greiða
álag. Ef notandi getur af einhverjum ástæðum ekki nýtt þá
orku sem hann áætlaði, er hann samt sem áður skuldbundinn til að
greiða fyrir hana. Það þarf því lítið útaf að bregða til að
hækkunin verði í raun enn meiri. Svo ekki sé minnst á þá
vinnu sem leggja þarf í áætlanagerð.
Þetta eru talsvert óvænt tíðindi og skilmálar af þessu tagi eru
algjör nýmæli á almennum markaði eftir því sem Orkuvaktin kemst
næst. Orkusölum hefur verið gert að skila inn ítarlegum
áætlunum um orkusölu frá innleiðingu samkeppni á raforkumarkaði og
er þessi aðferðarfræði væntanlega þaðan komin.
Þrátt fyrir þessar hækkanir er ótryggða orkan enn talsvert
hagstæðari en forgangsorka í raforku og einnig talsvert ódýrari en
notkun olíu, en hún er víða notuð í iðnaði t.d. við
gufuframleiðslu.
Það jákvæða í þessu öllu saman er sú staðreynd að nú, eftir um 9
ára hlé gefst nýjum aðilum kostur á að nýta þessa ótryggðu
orku. Orkuvaktin hvetur því iðnfyrirtæki til að skoða þennan
kost.