Um áramótin hækkaði dreifikostnaður raforku hjá öllum
dreifiveitum raforku nema HS Veitna. Ef borin er saman hækkun
á orkugjaldi almenns taxta hjá öllum dreifiveitum varð hækkunin
mest hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR), 8,7% eins og sjá má í
eftirfarandi töflu.
| Veita, taxti |
1. jan 2011
[kr/kWst] |
1. jan 2012
[kr/kWst] |
Hækkun |
| Rarik, VO110 - Þéttbýli |
4,68 |
4,91 |
4,9% |
| Rarik, VO130 - Dreifbýli |
6,32 |
6,805 |
7,7% |
| OV, A10T - Þéttbýli |
4,26 |
4,52 |
6,1% |
| OV, A10D - Dreifbýli |
7,06 |
7,48 |
5,9% |
| Norðurorka, A1 |
4,32 |
4,45 |
3,0% |
| Rafveita Reyðarfjarðar* |
- |
4,21 |
- |
| Orkuveita Reykjavíkur,
A1 |
4,8 |
5,22 |
8,7% |
* Ekki liggur fyrir verð hjá
Rafveitu Reyðarfjarðar 1. jan. 2011
Þess ber að geta að í þessum gjöldum er innifalinn flutningur
sem ekki hækkaði. Hjá OR er hlutur flutnings 1,27 kr/kWst svo
hækkunin á dreifihluta orkugjalds er því í raun 11,9% í þeirra
tilviki.
Viðskiptavinir Norðurorku greiða nú lægst gjöld fyrir dreifingu
og flutning raforku en viðskiptavinir Rarik í dreifbýli þau hæstu
eins og hér sést:
| Veita |
Orkugjald [kr/kWst] |
M.v. lægsta |
| Rafveita Reyðarfjarðar |
4,21 |
| Norðurorka |
4,45 |
106% |
| HS Veitur |
4,5 |
107% |
| Orkubú Vestfjarða |
4,52 |
107% |
| Rarik, þéttbýli |
4,91 |
117% |
| Orkuveita Reykjavíkur |
5,22 |
124% |
| Rarik, dreifbýli |
6,805 |
162% |
| Orkubú
vestfjarða, dreifbýli |
7,48 |
185% |
HS Veitur hafa enn ekki hækkað sín verð en líklegt má telja að
hækkana sé að vænta hjá þeim. Við sjáum hér að notendur í
dreifbýli á Vestfjörðum greiða 85% hærra orkugjald en þeir sem búa
á dreifiveitusvæði Rafveitu Reyðarfjarðar.
Ef hækkanir eru skoðaðar nánar þá kemur í ljós að hjá sumum
orkusölum er útfærsla þeirra er með mismunandi hætti eftir
töxtum. Þannig hækka einstakir þættir taxta mismikið
hlutfallslega t.d. á B1 hjá OR. Orkugjald hans hækkar um 3,8%
en aflgjald og fast gjald um 12%. Þessi breyting eykur vægi
afltopps í orkuverði samanborið við orku og getur haft áhrif á það
hvort taxtinn er hagstæðastur fyrir viðkomandi notkun eða
ekki. Þetta er einn af þeim þáttum sem vaktaðir eru hjá
Orkuvaktinni.
Uppfært 10.01.2011
Verðum Orkubús Vestfjarða, dreifbýli og Rafveitu Reiðarfjarðar
bætt við.